Saturday, October 29, 2011

Brandari

Einu sinni var páfagaukur og það voru karl og kona sem áttu hann.
Einu sinni þá fóru karlinn og konan í bíó. Á meðan átti páfagaukurinn að vera einn heima.
Því miður átti páfagaukurinn ekkert búr, þannig að hann var alltaf í öllu húsinu.
Þegar karlinn og konan fóru, kveikti páfagaukurinn á sjónvarpinu.
Fyrst heyrði hann "kjötbollur og kartöflur".
Svo skipti hann um stöð og heyrði: "súpermaaan!"
Svo skipti hann um stöð og heyrði: "viltu koma með mér?"
Svo komu karlinn og konan heim.
Þá sagði karlinn við konuna: "Hvað eigum við að hafa í matinn?"
Þá sagði páfagaukurinn: "Kjötbollur og kartöflur!"
Þá sagði karlinn við páfagaukinn: "hver heldurðu eiginlega að þú sért?"
Þá sagði páfagaukurinn: "súpermaaan!"
Þá sagði maðurinn: "farðu til helvítis!"
Þá sagði páfagaukurinn: "viltu koma með mér?"

Brandari

Af hverju horfa Hafnfirðingar alltaf upp í loft á veturna?






Svar: Af því að þeir eru að passa sig á fljúgandi hálku!

Brandari

Einu sinni var önd og hún var að synda yfir vatn.
Svo sá hún skilti sem stóð á: "ekki synda yfir vatnið, ekki labba yfir vatnið og ekki gera neitt við vatnið"
Hvað gerði öndin?






Svar: greyið öndin kunni ekki að lesa svo hún synti bara áfram!