Einu sinni var páfagaukur og það voru karl og kona sem áttu hann.
Einu sinni þá fóru karlinn og konan í bíó. Á meðan átti páfagaukurinn að vera einn heima.
Því miður átti páfagaukurinn ekkert búr, þannig að hann var alltaf í öllu húsinu.
Þegar karlinn og konan fóru, kveikti páfagaukurinn á sjónvarpinu.
Fyrst heyrði hann "kjötbollur og kartöflur".
Svo skipti hann um stöð og heyrði: "súpermaaan!"
Svo skipti hann um stöð og heyrði: "viltu koma með mér?"
Svo komu karlinn og konan heim.
Þá sagði karlinn við konuna: "Hvað eigum við að hafa í matinn?"
Þá sagði páfagaukurinn: "Kjötbollur og kartöflur!"
Þá sagði karlinn við páfagaukinn: "hver heldurðu eiginlega að þú sért?"
Þá sagði páfagaukurinn: "súpermaaan!"
Þá sagði maðurinn: "farðu til helvítis!"
Þá sagði páfagaukurinn: "viltu koma með mér?"
No comments:
Post a Comment