Wednesday, November 28, 2012

Mynd

núna er núna en það er ekki alltaf núna. Núna hjá mér er 28.nóvember 2012. Ég ligg í rúminu hennar systur minnar með tölvuna hennar systur minnar. Ég er að hlusta á 5. sinfóníu eftir Beethoven fyrir tónfræðipróf sem ég er að fara að taka eftir viku. En núna er núna búið og þá er ég að hlusta á Toccata í g-moll eftir Bach. En núna sem þið eruð að horfa á myndina mína inn á bloggsíðunni minni og hugsa ,,hvað er hún Ólína að pæla með því að vera með mynd og skrifa svo um núna" þá er um myndina þetta:
á myndinni eru stafir en þið þurfið ekki að skoða þá það á bara að vera listrænt.ég breitti myndinni líka.


kv.
Ólína

Monday, November 26, 2012

Comment

Comment er skrítið fyrirbæri sem maður á að skrifa sín skoðun af bloggonum sem ég set inná mína frabæru bloggsíðu,þó ég segi nú sjálf frá. Ég mæli innirlega með því að þið commentið því þá fæ ég hugmyndir af annahvort nýju bloggi eða endurgera hitt sem þið commentuðuð.



,,ká vaff punktur"

ÓLÍNA

Sunday, November 25, 2012

Hver er frændnn?




Sjáið þið kæru landsmenn og ólandsmenn,
Þessari mynd myndbreitti frændi minn.(orðið myndbreita sá ég bak við mjólkurfernu) Fyrst tók hann mynd og svo setti hann hana í allskonar forrit og breitti henni. Þeir sem þekkja þennan frænda minn þeir geta séð hvað er búið að breita myndinni mikið.
Með vinsemd og virðingu,
Ólína


Sunday, November 11, 2012

Airwaves 2012

Kæru aðdávendur og ekki aðdávendur.
Ef þið vissuð það þá spilaði ég á Airwaves um daginn. Ég spilaði með stóru systrum mínum,Áshildi og Jófríði í hljómsveitinni þeirra, Pascal Pinon. Það var mjög gaman. Ég spilaði á mörg hljóðfæri,til dæmis harmonikku(eins og á myndinni) og hljómborð og ýmislegt fleira. Þær sem spiluðu með voru þrjár systur mínar og ein önnur stelpa.Eins og ég segi var alveg rosalega gaman. Þeð voru allveg fullt af hausum og tónleikonum og allir að horfa á okkur. Mér fannst þetta nú bara ágætlega vel heppnað hjá okkur. Daginn eftir hittum við rosalega skemmtilega Japana. Þeim fannst ótrúlega findið þegar ég borðaði pönnuköku. Ég borðaði hana bara rosalega venjulega en sammt fóru þeir alveg að skellihlæja. En allaveganna,
Bæ,bæ

Saturday, November 10, 2012

bókalisti

Hér eru nokkrar bækur sem ég hef lesið og mæli rosa með:

Dagbók Ólafíu Arndísar (og hann bókaflokkur)
Bróðir minn Ljónshjarta
Molly Moon (og hann bókaflokkur)
Söngur þagnarinnar (og hann bókaflokkur)
Draugaslóð
Dagbók prinsessu (og hann bókaflokkur)
Að temja drekann sinn
Ballið á Bessastöðum (og hann bókaflokkur)



og hann bókaflokkur=það eru til feiri er ein bók um sömu persónu og kallast það þess vegna bókaflokkur