Thursday, December 20, 2012

Airwaves 2012



þeir sem hafa fylgst með því sem er að gerast inn á blogginu mínu vita að ég spilaði á Airwaves í október. Og þeir sem fylgjast ennþábetur með vita að ég hitti japana og spilaði fyrir þá  með stóru systrum mínum. Ef þið viljið vita meira um tónleikana sem ég spilaði á fyrir japanana þá komu útlennskir kallar og tóku upp nokkur lög. Þeir settu það inn á youtube og hér er það í allri sinni dýrð.

http://youtu.be/2gypC3mKSEY

Wednesday, November 28, 2012

Mynd

núna er núna en það er ekki alltaf núna. Núna hjá mér er 28.nóvember 2012. Ég ligg í rúminu hennar systur minnar með tölvuna hennar systur minnar. Ég er að hlusta á 5. sinfóníu eftir Beethoven fyrir tónfræðipróf sem ég er að fara að taka eftir viku. En núna er núna búið og þá er ég að hlusta á Toccata í g-moll eftir Bach. En núna sem þið eruð að horfa á myndina mína inn á bloggsíðunni minni og hugsa ,,hvað er hún Ólína að pæla með því að vera með mynd og skrifa svo um núna" þá er um myndina þetta:
á myndinni eru stafir en þið þurfið ekki að skoða þá það á bara að vera listrænt.ég breitti myndinni líka.


kv.
Ólína

Monday, November 26, 2012

Comment

Comment er skrítið fyrirbæri sem maður á að skrifa sín skoðun af bloggonum sem ég set inná mína frabæru bloggsíðu,þó ég segi nú sjálf frá. Ég mæli innirlega með því að þið commentið því þá fæ ég hugmyndir af annahvort nýju bloggi eða endurgera hitt sem þið commentuðuð.



,,ká vaff punktur"

ÓLÍNA

Sunday, November 25, 2012

Hver er frændnn?




Sjáið þið kæru landsmenn og ólandsmenn,
Þessari mynd myndbreitti frændi minn.(orðið myndbreita sá ég bak við mjólkurfernu) Fyrst tók hann mynd og svo setti hann hana í allskonar forrit og breitti henni. Þeir sem þekkja þennan frænda minn þeir geta séð hvað er búið að breita myndinni mikið.
Með vinsemd og virðingu,
Ólína


Sunday, November 11, 2012

Airwaves 2012

Kæru aðdávendur og ekki aðdávendur.
Ef þið vissuð það þá spilaði ég á Airwaves um daginn. Ég spilaði með stóru systrum mínum,Áshildi og Jófríði í hljómsveitinni þeirra, Pascal Pinon. Það var mjög gaman. Ég spilaði á mörg hljóðfæri,til dæmis harmonikku(eins og á myndinni) og hljómborð og ýmislegt fleira. Þær sem spiluðu með voru þrjár systur mínar og ein önnur stelpa.Eins og ég segi var alveg rosalega gaman. Þeð voru allveg fullt af hausum og tónleikonum og allir að horfa á okkur. Mér fannst þetta nú bara ágætlega vel heppnað hjá okkur. Daginn eftir hittum við rosalega skemmtilega Japana. Þeim fannst ótrúlega findið þegar ég borðaði pönnuköku. Ég borðaði hana bara rosalega venjulega en sammt fóru þeir alveg að skellihlæja. En allaveganna,
Bæ,bæ

Saturday, November 10, 2012

bókalisti

Hér eru nokkrar bækur sem ég hef lesið og mæli rosa með:

Dagbók Ólafíu Arndísar (og hann bókaflokkur)
Bróðir minn Ljónshjarta
Molly Moon (og hann bókaflokkur)
Söngur þagnarinnar (og hann bókaflokkur)
Draugaslóð
Dagbók prinsessu (og hann bókaflokkur)
Að temja drekann sinn
Ballið á Bessastöðum (og hann bókaflokkur)



og hann bókaflokkur=það eru til feiri er ein bók um sömu persónu og kallast það þess vegna bókaflokkur

Thursday, October 18, 2012

gátur

1.Hvað er það sem hinn blindi getur séð, sá heirnalausi heyrt og sá heimski hlær af?
2.Hvaða hljóðfæri er þrjóskast?
3.Hvaða hús er fullt af mat með þunna veggi,en á því eru hvorki dyr né þak?
4.Í hvaða boga þarf engar örvar í?
5.Hvers vegna eru grátur og hlátur bæði lífshættuleg?

Svör:
1.Ekkert
2.Trommur. Það þarf alltaf að lemja þær til að þær láti í sér heira.
3.Eggið
4.Regnbogann
5.Af því að þú getur brostið í grát og sprungið á hlátri

Wednesday, September 26, 2012

Fallegar myndir





Góðan dag eða kvöld kæru landsmenn.
Hér eru  nokkrar myndir sem mér finnst aðver ótrúlega flottar. Efsta myndin er af einhveju risastóru húsi sem er í útlöndum(náttúrulega). næsta myndin er líka af einhverju flottu húsi líka í útlöndum. Næsta mynd er af bryggju og skógi sem er líka í útlöndum. Vinsamlega takið eftir bátunum sem eru þar. Ég mundi ekki halda að það sé mikið af bátum í þessu útlandi. Næsta mynd er af rosa listræn (finnst mér). En sú sem síndi mér þessar myndir fannst hún ekki flott. bara misheppnuð. Næsta mynd er líka bara af einhverju húsi í útlöndum. En það er líka rosa flott eins og hinar myndirnar.       *  BLESS *

Wednesday, September 12, 2012

brandari

Einu sinni voru tvær appelínur að labba yfir brú. Þá datt önnur appelsínan ofaní vatnið.Þá sagði hin: fljót skerðu þig í báta.

Monday, September 10, 2012

Kristínarfjör hjá ÓLÍNU

Kæru skoðendur á bloggsíðunni minni.

Leyfist mér að kynna Kristínu Ylfu eitthvað.
Kristín er kölluð Krissa í mínum heimi. Þannig að endilega kallið hana það.
Kristín er vinkona Ásthildar (ritarans í þessari grein sem ég bjó til) og Jófríðar (ekki neitt nema tónlistarmaður) og svo náttúrulega mín.
Kristín er með lífrænt appelsínugult hár einsog appelsína. Henni finnst það ljóst.
Kristín er súperkúl og hundraðlúl. Hún lifir lífinu einsog keisari: (sjá mynd)
Kristín er svona:


Hún er þarna í París að gefa einhverjum stráki turn að nafni Jónas. Kristín er maðurinn í hattinum (skemmtilegasta manneskjan í myndinni). Sumir halda kannski að þetta sé fótósjoppuð mynd en er hún það ekki.

Lifið heil,
ólína

Friday, August 17, 2012

tilraunarfjör hjá ÓLINU

í þessari grein  voru nokkrar persónur sem litu á síðuna og sögðu topp 10  sem þeim fannst flottast á bloggsíðunni:
1.finnskaugafjörhjá ÓLÍNU
2.ólína kemur og kveðurniður jólin
3.ólína og þórunn leika á röddina
4.og bara fínasta ljóð...
5.perlufjör hjá ÓLÍNU
6.eitur
7.sundfjörhjá ÓLÍNU
8.íkornafjör hjáÓLÍNU
9.slimfjör hjá ÓLÍNU
10.MATARFJÖR HJÁ ÓLÍNU


persónurnar sem völdu top 10:
sóley,helga,marta og júlía

Monday, July 30, 2012

Myndafjör hjá ÓLÍNU






Finnsk-augu-fjör hjá ÓLÍNU

Þetta eru nammiaugu sem systir mín Ásthildur kom með frá Finnlandi. Sko...hún var nefninlega í masterklassi á píanói þar, hún er nefninlega snillingur á píanó. Augun eru ljúffeng og slímugt en sammt góð á bragðið,það er svona gúmmíbragð af því. Eins og þið kannski sjáið er búið að bíta í eitt augað. Það er mitt auga. Marta systa á hitt óbitna augað. Ég fékk það bara í láni á meðan ég tók myndina. 

Monday, July 2, 2012

Matarfjör hjá ÓLÍNU


DÖMUR MÍNAR OG HERRAR LEIFIST MÉR AÐ KINNA ÍTALÍUBTAUÐ 2012. Á BRAUÐINU ER SVEPPASMUROSTUR, GRÆNT PESTÓ OG RAUTT PESTÓ. HÖNNUÐURINN Á ÞESSU SNILDARVERKI ER RÓSA HARÐJAXL. BRAUÐIÐ FÉKK NAFNIÐ VEGNA LITANNA OG SAMSETNINGANNA Á ÞEIM. ENDILEGA ÚTBÚIÐ YKKUR SLÍKT BRAUÐ VEGNA ALLVEG MAGNAÐS BRAGS(FINNST RÓSU). ÞÖKK FYRIR RÓSA OG NJÓTIÐ ALLIR HINIR.

Sunday, July 1, 2012

Auglisingafjör hjá ÓLÍNU

Góðan dag kæru landsmenn og fleiri.
Auglising, auglising og enn og aftur auglising.
Ég er búin að búa til fansíðu.
Hún heitir facebook.com/OlinaAkadottir .
Hún er búin til til þess að auglísa ef eithvað nýtt kemur inn á bloggsíðuna(þessa bloggsíðu).


Kv.
bless bless

Friday, June 29, 2012

Teiknimyndafjör hjá ÓLÍNU


FLOTTASTA MYND I HEIMI
Bráðum verður til teiknimyndasaga sem heitir HJÓNIN OG GOÐAFRESKJAN. Hér er smá sýnishorn:

Thursday, June 21, 2012

brandari

Einu sinni voru ljón,björn og svín að tala saman.
Fyrst sagði björninn:
Ef ég urra smáveigis hlaupa allir í kring í burtu.
Þá horfði ljónið á björninn og sagði:
Iss það er ekkert.Ef ég geng nálægt fólki hleypur það öskrandi í burtu.
Þá horfði svínið á björninn og ljónið og sagði:
Það er ekkert. Ef ég hnerra smáveigis þarf allur heimurinn að láta bólusetja sig.

Saturday, June 2, 2012

Brandari

Bragi : pabbi ég get ekki borðað þessa súpu
pabbi : þjónn viltu koman með aðra tegund af súpu handa syni mínum
Bragi : ég get heldur ekki borðað þessa súpu
pabbi : þjónn viltu koma með eitthverja aðra tegund handa drengnum
Bragi: en pabbi ég get ekki heldur borðað þessa súpu
pabbi: afhverju í óskubunum geturu það ekki?
Bragi: ég hef enga skeið!

Tuesday, May 22, 2012

plómublogg

Hæ góðir landsmenn.

Hér er ég að auglísa nýja bloggsíðu sem ég var að búa til með nokkrum vinum og vinkonum mínum.
bloggsíðan heitir plomublogg.blogspot.com . Í henni er sagt tíðindi um nýja heimaskrifstofu sem ég og nokkrir vinir og vinkonur mínir stofnuðu. lesið meira á plomublogg.blogspot.com . sammt þíðir það ekki að ég muni hætta að skrifa inn á þessa bloggsíðu. ástæðan fyrir því er að þessi bloggsíða er miklu skemmtilegri heldur er plomublog.

kv.ég

Monday, April 30, 2012

Nýyrðafjör hjá ÓLÍNU

Um daginn fékk ég mér þvertopp. Sjáið hvað ég er fín!



Fyrir klipingu
Eftir klippingu

Thursday, April 26, 2012

brandari

jónas litli hafði verið í heimsókn hjá Kalla, vini sínum, allan daginn. ,,ég var að leika mér með fótbolta inni í stofu og braut óvart lampa,"játaði hann fyrir mömmu sinni þegar hann kom heim. ,,en við þurfum ekki að hafa áhiggjur af því að kaupa annan," bætti hann glaðlega við. ,,mamma hans kalla sagði að þessi lampi væri óbætinlegur"

Sunday, April 15, 2012

rósufjör hjá Ólínu


þetta er rósa.hún kallar sig HARÐJAXL 1994.rósa er aðdávandi míns og bloggsíðunnar minnar.hún er með NEFHRING 2011.Rósa er 18 ára og ætlar að fara með mig í rigaferðalag þegar ég verð 18 ára (eftir 8 ár).rósa bír stundum í svíþjóð en þegar hún er ekki í svíþjóð er hún á íslandi að vinna á subway eða í fiskvinnu    ath. ekki í skóla!!!!!
kv.BLESS BLESS

Sunday, March 18, 2012

ásthildarfjör hjá ÓLÍNU


Þetta er stóra og eina af mínum uppáhalds stóra systrum. hún heitir ÁSTHILDUR. Á þessari mynd er ég og ásthildur. ásthildur æfir á píanó og fagott. hún er alltaf rosahress... (oftast). hún hjálpar mér oft að bloga. hún bjó til ógeðslegar kókoskúlur með hnetum og döðlum ojbarasta.
ásthilduur er skemmtileg eins og bangsi. (bangsar eru skemmtilegir). ásthildur er ritarinn í þessari grein en ég skrifaði hana samt.
kveðja :-)

Monday, March 5, 2012

íkornafjör hjá ÓLÍNU


ég og vinkona mín Þórunn fórum á Alvin og íkornarnir 3 einhverntíman í desember og við sáum svona voðalega fína styttu

Wednesday, February 29, 2012

brandari

á ég að segja þér dálítið fyndið sagði elli
já sagði billi
 24 ha ha ha ha ha sagði elli
á ég að segja þér svolítið enþá fyndnara sagði billi
já sagði elli
25 ha ha ha ha ha ha sagði billi

Thursday, February 9, 2012