Sunday, November 11, 2012

Airwaves 2012

Kæru aðdávendur og ekki aðdávendur.
Ef þið vissuð það þá spilaði ég á Airwaves um daginn. Ég spilaði með stóru systrum mínum,Áshildi og Jófríði í hljómsveitinni þeirra, Pascal Pinon. Það var mjög gaman. Ég spilaði á mörg hljóðfæri,til dæmis harmonikku(eins og á myndinni) og hljómborð og ýmislegt fleira. Þær sem spiluðu með voru þrjár systur mínar og ein önnur stelpa.Eins og ég segi var alveg rosalega gaman. Þeð voru allveg fullt af hausum og tónleikonum og allir að horfa á okkur. Mér fannst þetta nú bara ágætlega vel heppnað hjá okkur. Daginn eftir hittum við rosalega skemmtilega Japana. Þeim fannst ótrúlega findið þegar ég borðaði pönnuköku. Ég borðaði hana bara rosalega venjulega en sammt fóru þeir alveg að skellihlæja. En allaveganna,
Bæ,bæ

1 comment:

  1. Skemmtilegt ég sá þig á Airwaves.
    eftir óþekktann höund.

    ReplyDelete